Lýsing

23.–28. apríl 

Brottför kl. 16  á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Fararstjórn: Aðalsteinn Árnason og Halldór Halldórsson


Þetta er ferð fyrir vant útivistarfólk. Ferðin gæti orðið styttri en varla lengri, það fer eftir veðri og snjóalögum og dyntum fararstjóra. 

Tilvalin ferð fyrir þá sem vilja ferðast með farangurinn í púlku eða á sleða.


Gist verður í skálum Ferðafélags Akureyrar á Öskjuveginum. Hver og einn verður sjálfum sér nægur með nesti og búnað.

Um er að ræða sex daga vetrarferð sem krefst viðeigandi vetrarbúnaðar og þurfa þátttakendur að vera útbúnir samkvæmt því. 

Nauðsynlegur búnaður eru utanbrautarskíði með stálköntum, hlýr fatnaður, hlýir skór, bakpoki eða púlka. Fararstjórar verða í sambandi um nauðsynlegan búnað þegar nær dregur ferð. Gist verður í skálunum Botna, Dyngjufelli,  Dreka og Bræðrafelli.

Dagskrá ferðarinnar:

1. d. fimmtudagur: Svartárkot – Botni , gist í Botna. Vegalengd 15 km.

2. d. föstudagur: Botni – Dyngjufell, gist í Dyngjufelli. Vegalengd 22 km og ögn á fótinn.

3. d. laugardagur: Dyngjufell – Dreki , gist í Dreka. Vegalengd 20 km og töluverð hækkun upp í Jónsskarð.

4. d. sunnudagur: Dreki – Bræðrafell , gist í Bræðrafelli. Vegalengd 20 km um ójafnt hraun að hluta.

5. d. mánudagur: Bræðrafell – Botni , gist í Botna. Vegalengd 28 km.

6. d. þriðjudagur: Botni – Svartárkot. Vegalengd 15 km og eitthvað undan fæti.


Verð: 68.000 / 73.000 kr. Innifalið: Gisting í fimm nætur og fararstjórn.

Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.



Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Lengri ferðir og vetrarferðir: 3 - 4 skór

    Erfiðar ferðir: Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár. Ef gist er þá er oftast það oftast og þá þarf að bera svefnpoka.


     

    Mjög erfiðar ferðir: Erfiðar og langar dagleiðir yfir 10 klst. Gengið með allt á bakinu, oft í bröttu fjalllendi, lausum skriðum og stórgrýti. Búast má við erfiðum ám. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.


    Viðbót við grunn-búnaðarlista fyrir 3 - 4 skó. Sjá grunnlista hér:


    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Í lengri ferðir (1 - 4 dagar) þarf auk grunnbúnaðar:

    Gönguskór sem henta krefjandi aðstæðum utan slóða og veita góðan stuðning

    Bakpoka: Stærri bakpoka ef gengið er með allt á bakinu annars dagspoka. Bakpokinn þarf að vera með bakpokahlíf

    Svefnpoki (og lítinn kodda)

    Inniskó ef gist er í fjallaskálum

    Auka fatnað: Nærföt til skiptanna, sokkar, millilag og auka föt ef fólk blotnar

    Nauðsynlegar snyrtivörur og eyrnatappa

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Mat og hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)


    Í vetrarferðir (göngu- eða skíðaferðum) þarf auk grunnbúnaðar:

    Utanbrautarskíði með stálköntum (skinn á skíðin)

    Hlífðargleraugu

    Jöklabrodda og ísexi ef leið liggur um brattlendi. Fararstjóri lætur vita ef hana þarf

    Hlýrri fatnað en að jafnaði í sumarferðum: Ullarnærföt, ullarhúfu, ullarvettlinga og vindhelt ysta lag (buxur, jakki og lúffur) eru nauðsynlegur búnaður

    Orkumikið nesti og nóg að drekka (heitt og kalt í ílátum sem ekki frýs í)